|
Fl�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�
Fyrir 1745 dögum
|
04.09.2007 22:29:14 / titusville
Haldiði að mín hafi bara ekki vaknað loksins til blogglífsins... ekki seinna að vænta! Jæja það sem er helst í fréttum er það að Inga var hjá mér í 2 vikur og ég get sagt ykkur það að við skemmtum okkur alveg frábærlega. Við fórum að versla, í partý, til Miami, til Key Largo að snorkla, út að borða á hverju kvöldi (næstum því , út í sundlaug í sólbað og svo í enn fleiri partý!! En núna er Inga mín búin að yfirgefa mig og það er bara allt of sorglegt... en ég þarf vonandi bara að bíða þangað til í Október eftir að fá hana aftur til mín, jább Haldið þið svo ekki að skvísan sé bara komin með sóló á þyrlu (farin að fljúga alveg ein) sem er alveg geggjað, smá scary fyrst en það vandist af manni. Núna flýg ég cross country á fullu, (þá fer maður á annan flugvöll) búin að lenda á Merlbourne, Kissimmee, Daytona Beach og Orlando Executive flugvöllunum, ekki svo slæmt ha? Svo er ég búin að fara í fyrsta næturflugið, sem var nú heldur spes en þó þvílíkt fjör. Fór til Daytona Beach sem er hérna rétt hjá, notaði flight following alla leiðina, þá er manni leiðbeint af af gaurum frá Orlando Approach í gegnum radíóið alla leiðina.... mjög gaman hehe. Ég flaug einmitt í þeirri ferð í fyrsta skiptið yfir Summerhill þar sem ég bý, og þrátt fyrir myrkrið sá ég glitta í litla (stóra) gula húsið mitt  Á föstudaginn mun MEBA fjölskyldan svo mæta til Flórída sem er bara gaman, alltaf svo æðislegt að hitta fólk frá Íslandinu góða... Svo er Evu strax boðið í partý á laugardagskvöldinu annað er auðvitað ekki hægt, hana mun sko ekki skorta skemmtun meðan hún er hér í hitanum hjá mér Hlakka til að sjá þig skvís.... og Bjössa og Þurí og Ágúst Mána Jæja verð að fara að plana flugið mitt í fyrramálið, ætla að henda mér til Melbourne og kannski líka til Kissimmee þannig að það er nóg um að vera, jebberíjebb. Kveð þá í bili.... Sibba
»
01.06.2007 00:14:14 / titusville
Er búin að setja inn nokkrar nýjar myndir... Endilega kíkja
á!
»
10.05.2007 02:44:44 / titusville
Hæ öll sömul. Loksins bloggar skvísan í ameríkunni.... Þið
verðið að afsaka biðina bara búið að vera úúber mikið að gera hjá
mér, og svo byrjaði skólinn seinasta mánudag þannig að frítíminn
styttist bara ef eitthvað er.
En allavegana... Skólinn er æði, kennararnir mjög góðir
og krakkarnir (og fullorðnafólkið ) í bekknum eru mjög
fínir. Við erum semsagt 17 í bekknum og þar af 2 stelpur og 1 kona
(39ára), Hollendingar eru yfirráðandi í bekknum eða 5 alls og svo
komum við Íslendingarnir fast á eftir og erum 3.
Húsið er geðveikt, það er á þremur hæðum, bílskúrar á fyrstu
hæð, stofurnar, eldhúsið, klósett, þvottaherbergið og fleira á
annari hæð, svo eru svefnherbergin og baðherbergin á 3ju hæð.
Semsagt RISA stórt!!
Núna rétt áðan þá náðu strákarnir í hverfinu loksins að koma upp
65" sjónvarpinu hans Sigurgeirs upp stigana og inn í stofuna,
þannig að nú lítur hún meira út eins og bíósalur heldur en hin
hefðbundna stofa. (Stiginn okkar stendur eftir handriðalaus og með
flagnaða málingu, en allt fyrir bíósal ). Einnig kom vinur hans
frá Hollandi áðan og eldaði dýrindis kvöldmat handa okkur og vorum
við mjög þakklát fyrir það, jamm alltaf verið að dekra við mann
hérna.... Takk Johan 
Annars er næst á dagskrá að drífa í því að kaupa stafræna
myndavél svo ég geti farið að henda inn myndum hérna fyrir ykkur,
svona nokkrum af okkur krökkunum í fallega skólabúningnum okkar
Einnig ætlum við að hafa júróvísjon partý á morgun og á
laugardaginn, svona þar sem við erum örugglega með stærsta
sjónvarpið í hverfinu er engin hætta á að einhver sjái ekki á
það 
Jæja þá kveð ég.... Áfram Eiríkur Hauks
P.S. Ætla að deila með ykkur ljóði sem Inga setti inn á comments
hjá mér, það er snilld
Einn Dr. Seuss fyrir þig!
You ll be on your way up!
You ll be seeing great sights!
You ll join the high fliers
who soar to high heights.
Dr. Seuss
»
01.05.2007 01:47:52 / titusville
Jæja þá er komið að því... Rétt rúmir 15
tímar í að mín verði sest í eina þotu frá
Icelandair á leið til Flórída á vit ævintýra og náms! Ég held
að ég sé búin að gera allt sem ég þurfti að gera fyrir
ferðina, en dagurinn í dag var samt mjög stressandi, mér
fannst alltaf eins og ég væri að gleyma einhverju. Ekki
skemmtilegasta tilfinning í heimi
En þá vil ég bara enda á að kveðja alla sem ég skil eftir hér á
fróninu og segja ykkur að ég mun sakna ykkar svoooona mikið og ég elska
ykkur öll Svona til að vera smá væmin Já og takk fyrir
allar flottu kveðjugjafirnar... þær voru æði 
Reyni svo að blogga um leið og ég kem út og henda inn nokkrum
myndum.
Luv
Sibba
»
02.04.2007 22:24:25 / titusville

Haldiði ekki að mín sé loksins búin að prófa
listflug.... Fór í dag með Sigga á
vélinni hans, sem er hér til hliðar, og verð bara að segja að
þetta er alveg svakalegt! Ég fór á hvolf, í hringi, í lúpur
og í alskonar snúninga. Einnig flugu við lágflugi yfir
mosfellsbæjar flugbrautina og það kom svaka reykur eftir
okkur og alles. Vil taka það fram að það er ekkert yfir
farþegaklefanum þannig að það eina sem heldur manni í
vélinni eru beltin, hausinn er undir beru lofti, en það er
náttúrulega bara enn skemmtilegra
Svo fékk ég að
fljúga tryllitækinu, var alveg svaka töffari
Gleymdi samt að fylgjast með hæðinni, allt í einu sá ég ekki neitt
og þá vorum við víst komin inní skýin og Siggi minnti mig á að það
væru ekki blindflugsmælar í vélinni n
Jæja nú verða allir að fara og prófa listflug, mæli hiklaust með
því, VEL þess virði Og svo verður það vonandi þyrluflug FÖSTUdaginn
ÞRETTánda, segi ykkur auðvitað frá því hversu
æðislegt það var strax eftir flugið, mont mont...
Bæjó
»
02.04.2007 19:50:13 / titusville

Eva og ég skelltum okkur á boot camp vorfagnaðinn á
laugardaginn, og skemmtum okkur konunglega. Kvöldið byrjaði
kl.18.00 í fyrirteiti hjá Guðnýu, sem er með okkur í hóp, þar sem
við hittumst og fengum okkur snarl og fordrykki. Á slaginu 20.00
var haldið á Lídó þar sem 400 boot camp félagar og þjálfarar voru
saman komnir til að snæða á 3ja rétta dýrindis kvöldverði og dansa
framm í rauðan dauðan Skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum
og þá má helst nefna Stebba og Eyva, hljómsveit í grímubúningum og
skemmtanastjóra úr strákunum. Eftir fjörugan dans héldum við Eva á
Ólíver að hitta Ingu, Þórunni og Sissa, þar stoppaði sú gamla (ég)
í heilar 15 mín. og dreif sig svo heim sökum þreytu 
Einnig var 25 ára afmælisveisla hjá henni Tótu sama kvöld og
þykir mér miður að hafa ekki komist, sorrý elsku Þórunn og innilega
til hamingju með daginn.
Jæja bless
»
30.03.2007 19:54:30 / titusville
Mín er bara búin í aðgerðinni og allt gekk bara ofboðslega vel.
Núna tæpum 4 tímum eftir aðgerðina sér ekki á stelpunni, engin
sviði, engin óþægindi, ekki einu sinni rauð augu...

Aðgerðin tók heilar 15
mín. skil ekki hvernig hægt sé að laga margrar ára
sjónskekkju á svona fáránlegum stuttum tíma... allt er víst hægt í
dag 
Bara á meðan ég er að skrifa þetta finn ég hvernig sjónin batnar
með hverri mínútunni, bráðum verð ég komin með ofursjón og ekki má
gleyma bættri nætursjón sem augnlæknirinn henti með í pakkann.
Ég, Magndís og Inga fór á Hverfis í gær að hlusta á hana
Berglindi mína syngja með "hljómsveitinni" The Hlynur Ben Prodject.
Alveg rosalega flott hjá skvísunni, hún söng auðvitað eins og
engill eins og vænta mátti. Tónleikarnir voru haldnir í tilefni af
glænýrri plötu sem Hlynur(fyrrverandi sambýlingur Berglindar og
Hafþórs frá því á Laugarveginum) er að fara gefa út og voru þeir
bara hin fínasta skemmtun.
En jæja ætla að fara að horfa á sjónvarpið... með engin gleraugu

Bæ
»
30.03.2007 13:46:22 / titusville
Fyrir ykkur sem ekki vita þá er ég að fara í lazeraðgerð á
augunum núna eftir 40 mín. Shit ég er geðveikt kvíðin en samt líka
geðveikt spennt! Svaf sama og ekkert í nótt.... hræðilegt, komst
ekki í boot camp 
En jæja næst þegar ég skrifa færlsu verð ég komin með fullkomna
sjón, vúhú 
Kveð að sinni
SIbba nætursjón
»
29.03.2007 02:43:28 / titusville
Jæja þá erum við Sandra búnar að velja hvar við viljum búa...
Fyrir valinu varð Summerhill sem er svona lokað svæði með öllum
lúxus. Þar má nefna sundlaug í garðinum, bbq grill svæði, clubhouse
með bar og margt, margt fleira.

Við munum búa í 93 m2 íbúð, þar sem við fáum sér baðherbergi á
mann, þvílíkur lúxus! Íbúðinni fylgir uppþvottavél, þvottavél,
þurrkari, sjálfhreinsandi ofn, örbylgjuofn... osv.fr.

Er þetta ekki bara það flottasta í geymi...ha!
Það eru auðvitar allir velkomnir í heimsókn, því fleiri því
betra
Verð að fara, þarf að vakna kl.9 til að fara í listflug (ef
veður leyfir)
Out
»
29.03.2007 02:28:58 / titusville
»
29.03.2007 02:07:48 / titusville
Skrifað 09.jan.2007
Mín var að sækja um í þyrluflugskóla úti í Flórída, Helicopter
Adventure Inc. Og viti menn óheppnin heldur áfram að
elta mig, biðlistar í námskeiðið sem mig langar í ná fram til
Janúar á næsta ári, sem sagt 2008!! Ég fór að
hálfgráta þegar ég frétti það en náði þó að troða mér á
þá, þ.e.a.s. fyrir Maí og September námskeiðin. (Þetta er kennt 3 X
á ári).
Ætla núna bara að fara að vinna í að klára flugtímana fyrir
einkaflugið, ég og Siggi ætlum að reyna að fljúga sem fyrst (fer
allt eftir veðrinu hversu mikið hægt er að fljúga þar sem það er
ekki alltaf sem best hérna á Íslandi)
Og svo er auðvitað eitt LISTflug eða svo á leiðinni 
See ya
»
29.03.2007 01:55:26 / titusville
Skrifað 12.des.2006
Jæja þá er ég búin að fara í fyrsta þyrlutúrinn með
landhelgisgæslunni, og ég get bara ekki sagt annað en að það hafi
verið æðislegt!!! Minni var skellt
í skær appelsínugulan flotgalla, risa hjálmi með næturkíki og alles
var skellt ofan á hausinn á mér og svo héldum við 4
karlmenn og einn kvennmaður um borð í þyrluna...
Ég byrjaði á að sitja frammí hjá flugmönnunum til að fylgjast með í
flugtaki, reyndi að glugga á hvernig þeir fóru að þessu öllu saman
sem gekk misvel, og svo þegar komið var á æfingarsvæðið fór ég
aftur í til að fylgjast með hífingunum.
Byrjað var á að láta mann síga niður í skip landhelgisgæslunnar og
svo voru börur látnar síga, eftir það var híft manninn upp aftur.
Þetta var gert tvisvar sinnum, einnig átti að vera fleiri æfingar
en hætt var við þær vegna þess að björgunarbáturinn sem nota átti
festist í bauju eða beyju... náði því ekki alveg Svo fór
ég aftur frammí til að fylgjast með lendingunni og þannig...
Þegar á jörðina var aftur komið skelltum við okkur á Búlluna og
fengum okkur einn feitan hambó og spjölluðum um flug, frost,
Frakkland, ísbirni
Vil enda á að þakka Sigga fyrir frábæran flugtúr, og vona að ég
geti komið með sem fyrst aftur 
Jæja farinn að læra...
Kveð í bili
»
|
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
Dagsetning
9. febrúar 2012
|